Prófíll

  • Nafn: Margrét Brynjars
  • Netfang: m.brynjars hjá gmail.com (msn: maggacool hjá hotma
  • Stađur: Pite komun
  • Atvinna: Söngnemi í Luleĺ Tekniska Universitet
  • Hjúskaparstađa: Trúlofuđ, í sambúđ
  • Um mig: Viđ njótum ţess ađ búa í litlum ćvintýraskógi ţar sem frostiđ bítur á veturna en sólin iljar á sumrin. Stefnan er tekin á sitthvora BA gráđuna, ég í söng, hann í tónsmíđum og útsetningu. Áćtlađur námstími er um 3 ár. Annađ varđandi líf mitt mun tíminn einn leiđa í ljós...
  • Annađ: Ţeir sem hafa áhuga á ađ hafa samband viđ okkur ţá bendi ég á netföngin okkar: m.brynjars hjá gmail.com og gangleri hjá gmail.com og viđ munum hafa samband um hćl.

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Atburđarteljari

Svo langt um liđiđ.....

14. september 2008 klukkan 10:30
Sæl nú, þið örfáu hræður sem hugsanlega lesið þetta.

 Einhverjar vikur eru liðnar frá því að ég lét frá okkur hjúum síðast heyra, 
enda vorum við í sumarfríi (haustfríi) og fannst mér ástæða til þess að koma mér frá tölvunni.

Eitt og annað hefur á daga okkar drifið í sumar og í haust.
Hef ég hinsvegar enga löngun að skrifa langa pistla um hvern og einn atburð þannig að hér mun koma smá yfirlit með nokkrum myndum til skreytingar.

Júní:
  • Tónleikaferðalag um Norðurhluta Svíþjóðar með bekknum. 
  • Allt gekk vel, góð gagnrýni frá bæði áhorfendum og fjölmiðlum.
"Frá einum af tónleikum bekkjarins"
  • Próf í hinum og þessum fögum og verkefnaskil.
  • Flogið til Lundar þar sem íslenskur ættingi auk maka voru heimsótt (Daniel og Anna Sigga). Yndislegt veður, mikið skoðað, mikið etið og mikið notið þess að vera til. Enginn veikindapest í þetta skiptið
 
"Daníel og Anna Sigga í Malmö"
  • Flogið frá Kastrup til Akureyrar þar sem okkar beið öll fjöskyldan, bæði að Sunnan og Norðan. Veðrið  var ógeðslegt, grátt í fjöllum, svarta þoka og vindur, ahh gott að vera komin heim.
  • Tveir dagar teknir í sælu með ættingjum áður en haldið var til vinnu.

"Fjölskyldan hitt eftir langa fjarveru, hér sést Palli litli"
  • Lán frá Lín kemur inn og loksins græða fátækir námsmennirnir á lágu gengi krónunnar þar sem greitt var út í sænskum krónum en inn á íslenskann reikning. Jeii!!! En öllu stungið undir koddann og engu eytt enda nýr vetur framundan...
  • Vinna í Akureyrarkirkju og hjá Íslenskum Orkurannsóknum, hið hversdagslega líf tekið við önnum námsins.
  • Uppgötvun bílsins! Búðaferðir verða ótrúlega einfaldar.
  • Margrét hjólar alltaf í vinnunna og upp Gilið heim (fær massífa lærisvöðva, ekki vinsælt) en Gísli hleypur úr og í vinnu og kemmst allt í einu í öll fötin sín :)
  • Lögð lokahönd á skipulag sumartónleika hjúa og æfingar hefjast.
Júlí:
  • Fyrsti launaseðill sumarsins, dásamlegt að eiga pening eftir magran vetur. Af því tilefni eru keyptar nokkrar flíkur og pöntuð ein pítsa, lúxuslíf.
  • Vinna heldur áfram: Margrét vinnur jafnt um helgar sem virka daga frá 10 - 17 og Gísli vinnur virka daga 8-16 en gerist kirkjurotta um helgar þar sem hann les bækur, æfir tónlist, truflar Margréti í vinnunni, truflar Eyþór í sumarfríinu eða þykist vera prestur í kirkjunni þegar túristar spyrja um muni hennar. 
  • Gísli vinnur þann 7-falda í lottóinu og verður milljónamæringur. 
  • Nei, bíddu það var bara draumur, ó jæja. Þrátt fyrir það er flug keypt til London og áfram til Svíþjóðar fyrir "heimferðina" í Ágúst, ásamt jólaflugi til Íslands í Desember.
  • Margrét fer á fit-pilates námskeið sem reynist vera verkfæri djöfulsins og fær krónískar harðsperrur út mánuðinn, hí-á-mig!
  • Sumartónleikar Akureyrarkirkju hvern sunnudag. Spunatónleikar Eyþórs og Mikka standa upp úr! 
  • Margrét fær 3 daga í frí úr vinnunni og bruna hjúin í Borgarfjörð.
  • Hinir árlegu Skvísuleikar eru haldnir á Borgum, Sigurvegari Ólöf María Brynjarsdóttir en Margrét lendir í öðru sæti, ánægð með árangurinn (keppendur:2)
"Sigurvegari Skísuleikanna 2008"
  • Margrét verður 22 ára og lærir að hoppa á trampólíni.
  • Æft á hverjum degi fyrir spænskatónleika hjúa
Ágúst:
  • Ekkert brotið í Ak. kirkju um versló og sögulega stilltar fyllibittur á Akureyri.
  • Lífið heldur einfalt síðustu vikurnar: Vakna,borða, æfa, vinna, æfa, borða, sofa
  • Margrét fær gleraugu í fyrsta sinn og lýtur loksins út eins og nördinn sem hún er. 
"Margrét nörd" 
  •  8. ágúst: keyrt eftir vinnu í skagafjörð og fortónleikar haldnir fyrir ættingja Gísla í 15 manna sveitakirkju.
"Leikið af innlifun"
  • 16. ágúst: Spænskir tónleikar haldnir í Akureyrarkirkju að kveldi föstudags. 100 manns í kirkjunni og stemmingin góð. Frítt var inn á tónleikana og við í sjokki vegna fjöldans. Boðið til kaffis í safnaðarheimilinu. 
  • Fjölskylda, samstarfsfólk og vinir frá ýmsum landshlutum koma og njóta með okkur. Við þakklát og glöð.
"Auglýsing fyrir tónleika" 
  • 18. ágúst síðasti vinnudagur, allir kvaddir og brunað af stað suður.
  • Degi í Reykjavík eytt með vinum og verslunum :)
  • Tveir dagar heima í sveitinni í algjöru fríi og afslöppun. Ættingjar kvattir. 
"Heimatún" 
  • Flogið til London og lest tekin til Cony Beare þar sem Haddý frænka(Gísla) býr. 

"Haddy frænka og co" 
  • Dásamleg vika með erlendum ættingjum í London. Tónlist, bækur, leiksýning, verslanir, nótnakaup, fatakaup. Matur, vín, garðar, göngutúrar, söfn, allt ljósmyndað, neðanjarðalestir, veitingahús, pöbbar og nýir skór.

"Sunnudagur í Primrosehill park" 
  • Endurnærð eftir fyrsta sumarfríið okkar í mörg ár, haldið af stað til Stokkhólms.
  • Lennt í Luleå 28. ágúst kl 15.00. Taskan hans Gísla auðvitað týnd.
  • Keyrt með Flygtaxi heim í tónlistarskólann í Piteå og gengið heim með færri töskur en við hefðum viljað, en þakklát um leið, enda spölurinn drjúgur.

"Gísli kominn heim, en töskulaus" 
  • Taskan hans Gísla finnst í Kiruna (bær í Norður Svíþjóð) og send til okkar.
  • Blómin í glugganum dauð, rykið mikið og bæði fá kvef vegna heimaskíts og þurrs loftlags.
  • Sænskan merkilega lítið ryðguð en eitthvað þó...
September:
  • Skólinn hefst, Margrét í hörkuformi eftir sumarið og sennilega orðin sópran (undarlegt), Gísli sýnir verkin sín frá fyrra ári nýjum kennarra og fær mikið hrós fyrir. 
  • Vinir hittir, sumir eins, aðrir breyttir, enn aðrir farnir og nýjir komnir í staðinn.
  • Fólk segir okkur hafa meira hár og minni bumbur, nokkrar veislur og partý og allir kátir 

"Sæl heima í Piteå" 
  • Skil á verkefni í kontrapunkti hjá Gísla og próf í tónheyrn hjá Margréti, skólinn greinilega byrjaður aftur.
  • Margrét fer í klippingu í fyrsta sinn í ár og man allt í einu hvers vegna hún tímdi ekki lengur að fara á hárgreiðslustofur en er ánægð með útkomuna, þrátt fyrir tóma pyngju.
  • Margrét kaupir nýja tölvu frá apple og photobooth er mikið uppáhald.

"Crazy í Photobooth" 
  • Undirbúningur fyrir heimsókn Öbbu okkar, tilhlökkunin mikil og bara ein vika í atburðinn.
  •  Alsæl að vera komin heim og gaman að vera til!
Takk fyrir sumarið vinir og gleðilegt haust!
Ykkar
Margrét

Húrra fyrir blogginu. Mér finnst eins og svo margir vinir mínir séu farnir til Svíþjóðar að ég verði að fara að drífa mig í víking þangað. Embla er t.d. líka búin að leggja Svíþjóð að fótum sér, hvað segirðu um að ég taki bara Ösp og Rögnu með mér og skelli mér í heimsókn? ;) nei ég vil nú ekki lofa uppí ermina á mér, enda er ég fátækur námsmaður með götóttar ermar svo það sem ég lofa uppí þær dettur bara útum götin. En mikið væri það samt gaman!

Og ég trúi því ekki að taskan hans Gísla hafi enn og aftur týnst! Þetta er djók, nei, farsi!
#1
14. september 2008 klukkan 20:16
Ohh skemmtilegt blogg og æðislegt að heyra frá þér loksins. Ég er ekki búin að finna sjálfa mig aftur eftir viku horror (samt mikið gaman) með 9 dönskum kerlum. Svo stutt komment núna
túttlús
Olla syss
#2
16. september 2008 klukkan 12:48
 
Abba
Eg kem a morgun.

A morgun!
#3
16. september 2008 klukkan 16:38
 
Margrét Brynjarsdóttir
Takk allar saman fyrir kvittið, en jii minn hvað ég hef verið orðin þreytt þegar ég skrifaði þessa færslu, innsláttavillur: 10 úff. Best að fara í gegnum þetta og leiðrétta aðeins :)

Gaman að heyra frá ykkur
#4
17. september 2008 klukkan 05:31
 
Sigrún Magna
Úff, þið hafið gert svo margt í sumar að ég verð bara lúin (en ánægð) við að lesa.
Annars var ég í nágrenninu um síðustu helgi, þ.e. í Stokkhólmi, í heimsókn hjá Sigga og Claudiu. Það var sumarfrí okkar hjónanna;)
Gangi ykkur vel í skólanum.
#5
17. september 2008 klukkan 18:10
 
Eyţór
Takk fyrir hlý orð um tónleikana. Það er engin truflun að hitta ykkur í sumarfríinu. Bið að heilsa til Piitää. Passið ykkkur á Öbbu. (er þetta ekki annars Abba mín?)
#6
18. september 2008 klukkan 22:23
 
Krissa
Hæ fallegust.. risa kissi kiss til þín og Gísla :* knúsiði hvort annað frá mér. Sakna ykkar ekkert smátt mikið.
#7
21. september 2008 klukkan 06:10
 
Margrét frĺn Akureyri
Gott og gaman að heyra frá ykkur. Ég leit hér inn af rælni og fann þá skrifin þín. Það var svo indælt að fá að hafa ykkur í sumar og tónleikarnir aldeilis frábærir.
Bestu kveðjur úr Ásveginum
#8
21. september 2008 klukkan 11:16
Loksins kom blogg hjá minni:D thetta hefur verid ansi vidburdarríkt sumar hjá ykkur sé ég! En ég bid bara ad heilsa hédan af Stenhuggervej:) knus
#9
21. september 2008 klukkan 12:27
 
Eydís og Svenni
Punktarnir teknir á sumarið greinilega enda gerðist ótal margt :)
Alltaf gaman að geta fylgst með ykkur.
Til hamingju með nýju tölvuna.
Vonandi komist þið vel undan vetri :)
Bestu kveðjur að norðan (þar sem við erum í augnablikinu),
Eydís og Svenni
#10
21. september 2008 klukkan 17:06
Hej Margret! Er fólkið þarna fyrir norðan jafn asskoti rólegt í tíðnni eins og hérna suðurfrá? Það er ekkert stress!! :)
#11
24. september 2008 klukkan 06:55
 
Anna Guđrún
þetta hefur verið gott sumar hjá ykkur skötuhjúunum! er bara í mega bömmer yfir að hafa ekkert hitt ykkur! sumarið var greinilega aðeins of stutt :( en við verðum bara að bæta úr því við tækifæri!! sakna ykkar elskurnar...

kveðja frá Reykjavíkurmærinni sem er alveg að verða komin með BA gráðu :p

p.s. margrét ertu búinn að missa helling af okkar bæjarafitu??? ég verð að fara að taka mig á greinilega, þetta er víst hægt ;)
#12
27. september 2008 klukkan 17:07
 
Magnea
Jæja sætu.. gaman að sjá að sumarið hefur verið ykkur gott :)

hefði nú verið til í að sjá nefið á ykkur en maður verður bara að bæta úr því seinna..

koss og knús
#13
28. september 2008 klukkan 21:46
Allt er gott sem endar vel, eins og hið dásamlega sumar á Íslandi. Nú er bara að bíða spenntur eftir næstu endurfundum. Aldeilis yndislegir dagar sem við áttum rétt fyrir brottförina og stolnar stundir sumarsins ekki síðri.
Það hafa fleiri lokkar fokið en þeir dökku, þeir ljósu fuku líka en ekki með eins miklu buddusjokki.
Góðar kveðjur úr sveitasælunni
#14
29. september 2008 klukkan 23:10
Ég dó úr hlátri - tvisvar - við að lesa kommentið þitt á blogginu mínu. Þið eruð yndi. YNDI segi ég og skrifa. Og Svíar eru klárlega skrítnir. Knús til ykkar!
#15
07. október 2008 klukkan 10:41
 
Sólveig
sko margrét mín kæra, bloggaðu nú penninn minn, veit þú hefur fullt af bleki... :) allt gott héðan, þegar ég var í sthlm um daginn voru það bara tveir dagar og þeir voru mjööög intensífir.. en þú veist að ég læt þig vita ef ég fer í lengri se-resa. och hur vore det med skype-dejt snart? jo det vore finemang...
#16
19. október 2008 klukkan 13:41
 
valdís
af öllu mínu hjarta, með allri þeirri von og blíðu sem ég hef til í mér, þá bið ég þig, á sem ljúfasta og fallegasta hátt að fara að BLOGGA AFTUR STELPA!!!
ég var með bullandi samviskubit en hugsaði mér heldur betur gott til glóðarinnar, þar sem ég sá fraá að ná að lesa upp allt blogg, frá því fyrir bankakreppu, (hjá mér er bara til fyrir og eftir bankakreppu) en nada, nothing. naahii, nida nizza eða eitthvað...
ég neyðist því að hlusat á þennan hressa aðferðarfræðikennara... grátur
#17
28. október 2008 klukkan 17:36

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit