Að sjálfsögðu varð ég að vera fyrsta skvísan á fyrstu skvísuleikunum annars hafði ég aldrei getað keppt aftur ef ég hafði "brotið hæl" fyrir þér litla systir þar sem ég kenndi þér allt sem þú kannt og gott betur en það í skvísun :D.
Annars ætlum við fjölskyldan að fjölmenna til akureyris þann 15 að berja ykkur augum og þú mannst eftir óskalaginu *blikk*blikk*
Heyrumst og sjáumst þá
love you
Olla
Sumar, sumar, sumar og sól!!!
01. ágúst 2008 klukkan 13:26
Jæja félagar, ætli það geti verið að hér hafi eitthvað lítið verið skrifað í fleiri vikur???
Nei varla (haha)
Eins og kom fram í síðustu færslu erum við hjúin komin "heim" til Íslands,
nánar til tekið til Akureyrar þar sem við vinnum bæði baki brotnu eins mikið og við getum.
Ég hugsa að maður geti meira að segja bara sagt að við höfum átt sjö dagana sæla, þó ekki í fríi og aðgerðaleysi heldur í vinnu og svita, já því hér er hitinn mikil. Úff!
Flesta ættingja er þó búið að hitta á einn eða annan hátt og hafa flestir fengið jólagjafirnar sínar, sem var að þessu sinni fornfálegur geisladiskur sem við tókum upp að mestu fyrir jól en örfá lög síðan eftir jól (þar sem að upptökugræurnar biluðu þegar átti að leggja lokahönd á verkið).
Diskurinn sá heitir Mini-sance örlítill renaissance og er (eins og nafnið segir til um) lítill diskur sem er helgaður endurreisnar tímanum í tónlist.
Ekki meira um það, forvitnir verða bara að hafa samband og sníkja út disk :D
Það sem hefur mest á okkar daga drifið síðan við komum heim (fyrir utan vinnu) er ferð sem farin var suður yfir heiðar og heim í heiða fjörðinn (enginn dalur þar), Borgarfjörð.
Hittust þar nánustu ættingjar mínir auk okkar Gísla og var slegið til hinna fyrstu
(en árlegu) Skvísu leika þar sem keppt var um titilinn Skvísan 2008 og hið langþráða Skvísubelti ( svona eins og Grettis- eða Freyjubeltið í glímunni).
Vitaskuld var allt heimagert; keppendur, verðlaun, titill, dómarar, áhorfendur og sjálf þrautabrautin.
Voru liðir keppninnar nokkrir og óþarfi að telja þá upp hér.
Bar ég sigur úr bítum í nokkrum þeirra en andstæðingurinn í öðrum.
Til þess að gera langa sögu stutta þá er Skvísa ársins 2008
Ólöf María Brynjarsdóttir (stóra systa)
en ég stóð, hinsvegar, stolt, en auðmjúk, við hlið hennar í öðru sæti
(af 2 keppendum, haha).
Engu er þó að kvíða því ég mun koma sterk til leiks að ári og þá vera búin að æfa upp fimi mína í sms skilaboðum(þar var munurinn einna helst mestur).
Ferðin var sem sagt góð í alla staði og eyddi ég afmælisdeginum (aldrei slíku vant) heima, en eitthvað var lítið um gesti samt (skrýtið).
Ferðirnar út á land verða reyndar ekki fleiri fyrr en við keyrum til keflavíkur á leið okkar út, en þá er stefnan tekin á London þar sem á að kaupa námsbækur, nótur og tónleikaklæðnað áður en haldið er svo áfram til Piteå í Svíþjóð.
Fram að því höfum við samt sem áður nóg að gera því er verulega farið að styttast í sumartónleikana okkar sem verður svona smá smakk af því sem við höfum verið að taka okkur fyrir hendur í vetur.
Þemað er spænska (lög frá spænskumælandi löndum) og munu suðrænir tónar svífa um Akureyrarkirkju þann 15. ágúst kl. 20.00.
Vitaskuld kvetjum við eindregið alla til þess að mæta sem langar að hitta okkur eða heyra söng og gítarleik sem yljar um hjartaræturnar og fær mann til þess að ferðast í huganum.
Sem sagt föstudagurinn 15. ágúst kl. 20.00 í Akureyrarkirkju,
aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Um að gera fyrir ykkur sem búið fyrir sunnan að safnast saman í bíla eða hringja í mig ef ykkur vantar far, það verða til lausnir við því.
Annað er svo sem ekki merkilegt í fréttum þessa dagana.
Við erum þakklát fyrir að vera heima en söknum þó um leið litla Piteå sem okkur finnst vera okkar rétta heimili, enda ekkert rúmm eða staður sem maður getur kallað sinn eigin hér á fróni og verður sjálfsagt ekki fyrr en við höfum efni á að kaupa íbúð
(sem verður einhver bið á, haha)
Nóg röflað í bili en gaman væri að sjá hverjir kíkja ennþá hingað inn ef þið vilduð vera svo væn að kvitta pent fyrir á leiðinni út ;)
Hafið það sem allra best
ykkar Margrét

Hvenær farið þið svo út aftur?
#3
03. ágúst 2008 klukkan 13:25
MargrétB
Gaman að sjá að nokkrar yngismeyjar kíkja enn hingað inn :)
Heimferð (Svíþjóðarferð) er plönuð þann 28. ágúst en við förum af fróni þann 22. til London í "sumarfrí" í nokkra daga fyrst
Knús á ykkur dömur

#4
03. ágúst 2008 klukkan 13:44

Ákvað að kvitta fyrir komuna á síðuna :)
Magga